Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Vesalingarnir I

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 04/01/2023
Jean Valjean er staðráðinn í að snúa baki við glæpsamlegri fortíð sinni og verða að heiðarlegum manni. Eftir margra ára fangelsisvist og... > Lire la suite
8,99 €
E-book - ePub
Vérifier la compatibilité avec vos supports
  • E-book À partir de 8,99 €
    • audio
      8,99 €
Jean Valjean er staðráðinn í að snúa baki við glæpsamlegri fortíð sinni og verða að heiðarlegum manni. Eftir margra ára fangelsisvist og eymd tekst honum að skapa sér nafn sem auðugur verksmiðjueigandi og borgarstjóri. Á sama tíma fer lífið ekki ljúfum höndum um hina ungu Fatine sem eignast dóttur utan hjónabands og þarf í kjölfarið að færa fórnir sem ræna hana stoltinu og lífsgæðunum. Vesalingarnir er í senn átakanleg og hjartnæm saga sem lýsir mikilvægi samkenndar og kærleika þegar móti blæs.
Bókaserían Vesalingarnir kom fyrst út árið 1862 og naut umsvifalaust mikilla vinsælda. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er talin ein áhrifamesta skáldsaga sem gefin hefur verið út í Evrópu. Sagan gerist á fyrrihluta 19. aldar í Frakklandi þegar miklar hræringar eiga sér stað í samfélaginu. Þar fléttast líf ólíkra einstaklinga saman í örlagaríka atburðarás þrunginnar ástríðu, áræðis, og þrautseigju.
Eftir skáldsögunni hafa verið gerðar fjölmargar kvikmyndir en árið 2012 fóru Hugh Jackman, Anne Hathaway og Russel Crowe með aðalhlutverk í eftirgerð Vesalingana undir leikstjórn Tom Hoopers. Victor Hugo (1802-1885) var franskur skáldsagna-, ljóða- og leikritahöfundur. Hann er talinn einn fremsti og áhrifamesti rithöfundur Frakklands en Vesalingarnir og Hringjarinn í Notre Dame eru meðal þekktustu skáldsagna hans.
Ásamt því að vera einn af máttarstólpum rómantísku stefnunnar á 19. öld var Hugo einnig mikill mannréttindasinni og endurspeglast þau viðhorf í mörgum verka hans. Fjöldi bóka Hugos hefur verið endurgerður í formi sviðsverka og kvikmynda.

Fiche technique

  • Date de parution : 04/01/2023
  • Editeur : SAGA Egmont
  • Collection : Vesalingarnir
  • ISBN : 978-87-28-44915-8
  • EAN : 9788728449158
  • Format : ePub
  • Nb. de pages : 304 pages
  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages : 304
    • Taille : 594 Ko
    • Protection num. : Digital Watermarking
Victor Hugo et Einar H. Kvaran - Vesalingarnir I.
Vesalingarnir I
8,99 €
Haut de page