Hlýlegasti hljóðheimurinn. Ímyndaðu þér að þú sért heima. Glugginn er opinn og það er dálítil rigning úti. Nágranni þinn er að æfa sig á píanó og tónarnir flæða inn í herbergið þitt. Þú býrð til heitan drykk, tekur upp bók og kúrar uppi í sófa undir notalegu teppi, nú ertu tilbúinn að slaka á. Saga SoundsRannsóknir hafa sýnt að hljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Slökunar serían er röð af skemmtilegum og fjölbreyttum hljóðheimum sem þú getur hlustað á þegar þú vilt slaka á, fara að sofa eða einbeita þér vinnunni. Sérhannaður hljóðheimur skapar róandi andrúmsloft sem þú getur stigið inn í hvenær og hvar sem þú vilt.