Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Skuggar fortíðarinnar

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 27/07/2023
Maxine átti erfitt uppdráttar sem barn. Móðir hennar, Júlía, ólst upp við fátækt og giftist ríkum manni án þess að elska hann. Hún eignaðist... > Lire la suite
5,99 €
E-book - audio
Vérifier la compatibilité avec vos supports
  • E-book À partir de 5,99 €
    • ePub
      5,99 €
Maxine átti erfitt uppdráttar sem barn. Móðir hennar, Júlía, ólst upp við fátækt og giftist ríkum manni án þess að elska hann. Hún eignaðist tvö börn og var köld í garð þeirra. Þegar Maxine vex úr grasi lendur hún sjálf í erfiðleikum í ástarmálum. Hún giftist Victori en samband þeirra er henni sem fangelsi og Victor beitir hana reglulega ofbeldi. Þegar Victor hverfur og finnst síðar látinn beinast öll spjót að Maxine.
Hún hefur ástæðu til að vilja losna við hann og brátt ganga orðrómar manna á milli sem allir bera Maxine þungum sökum. Loks er Maxine ákærð fyrir morð og virðast allir hafa snúið við henni baki, nema gamli vinur hennar, Lee, sem reynist henni haukur í horni. Netta Muskett (1887-1963) fæddist í Kent á Englandi hún hóf starfsferil sinn sem stærðfræðikennari og sinnti sjúkraflutningum í fyrri heimsstyrjöldinni.
Síðar, árið 1927, gaf hún út sitt fyrsta skáldverk og varð brátt þekktur höfundur rómantískra skáldsagnabóka. Hún byrjaði að skrifa um fertugt og gaf hún út yfir 100 verk á ritferli sínum. Sum verka hennar komu út undir dulnefninu Annie Hill. Bækur Musketts eru þekktar fyrir grípandi söguþráð, margslungnar persónur og rómantíska atburðarás. Muskett var talin einn af farsælustu höfundum rómantískra skáldsagna á meðan hún lifði.
Lesendahópur hennar var stór og voru bækur hennar þýddar yfir á fjölmörg tungumál og nutu þær vinsælda um allan heim. Netta Muskett lést 76 ára gömul árið 1963 og entist henni ekki ævin til að sjá öll hennar verk á prenti. Síðasta bókin hennar kom út árið 1964. Bandaríska félagið The Romantic Novelists' Association veitti lengi verðlaun sem nefnd voru í höfuðið á Nettu Muskett, en hún var einn af meðstofnendum félagsins.
Bækur hennar höfða til þeirra sem njóta rómantískra skáldsagna sem fjalla um fjölskyldur, ástir og örlög.

Fiche technique

  • Date de parution : 27/07/2023
  • Editeur : SAGA Egmont
  • ISBN : 978-87-28-38707-8
  • EAN : 9788728387078
  • Format : audio
  • Caractéristiques du format MP3
    • Taille : 252 447 Ko
    • Protection num. : pas de protection
Netta Muskett et Snjólaug Bragadóttir - Skuggar fortíðarinnar.
Skuggar fortíðarinnar
5,99 €
Haut de page