Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Þriðja gráða

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 08/03/2024
Í þriðju bókinni um Kvennamorðklúbbinn komast hetjurnar heldur betur í hann krappann. Og ein þeirra á sér leyndarmál sem getur orðið þeim... > Lire la suite
8,99 €
E-book - audio
Vérifier la compatibilité avec vos supports
  • E-book À partir de 2,99 €
    • ePub
      2,99 €
Í þriðju bókinni um Kvennamorðklúbbinn komast hetjurnar heldur betur í hann krappann. Og ein þeirra á sér leyndarmál sem getur orðið þeim öllum að aldurtila. Rannsóknarlögreglukonan Lindsay Boxer verður vitni að sprengingu og í kjölfarið uppgötvar hún röð morða framin með aðeins þriggja daga millibili. Að venju leitar hún til vinkvenna sinna í Kvennamorðklúbbnum, sem eru boðnar og búnar til að aðstoða hana við að leysa málið.
En skyndilega eru morðingjarnir komnir með meðlim Kvennamorðklúbbsins í sjónlínuna og í ljós kemur að ein þeirra geymir leyndarmál sem er svo hræðilegt að þær eru allar í hættu. Hver þeirra skyldi það vera? Mun Kvennamorðklúbburinn lifa af?KvennamorðklúbburinnKvennamorðklúbburinn er röð spennusagna eftir James Patterson. Þær eiga það allar sameiginlegt að gerast í San Francisco og innihalda sömu fjórar aðalpersónurnar, konur sem láta ekkert stoppa sig til að réttlætið nái fram að ganga.
Árið 2007 voru gerðir sjónvarpsþættir sem byggðu á bókunum og báru sama nafn. James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.
Andrew Gross er bandarískur rithöfundur, best þekktur fyrir samstarfsverkefni sín með James Patterson. Þar á meðal eru tvær bækur í ritröðinni Kvennamorðklúbburinn. Bókin fær fjórar og hálfa stjörnu hjá notendum Goodreads.

Fiche technique

  • Caractéristiques du format MP3
    • Taille : 375 992 Ko
    • Protection num. : pas de protection
James Patterson et Andrew Gross - Þriðja gráða.
Þriðja gráða
8,99 €
Haut de page