Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Norræn Sakamál 2003

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 25/09/2020
Sakamál eru meðal þeirra umræðuefna sem hvað oftast ber á góma í samfélaginu. Sakamálaþættir af ýmsum toga eru með vinsælasta afþreyingarefninu,... > Lire la suite
7,99 €
E-book - ePub
Vérifier la compatibilité avec vos supports
Sakamál eru meðal þeirra umræðuefna sem hvað oftast ber á góma í samfélaginu. Sakamálaþættir af ýmsum toga eru með vinsælasta afþreyingarefninu, bæði í sjón- varpi og kvikmyndahúsum. Íslenskar sakamálaskáldsögur hafa verið að ryðja sér til rúms á innlendum og alþjóðlegum markaði og notið verðskuldaðrar athygli. Öll þessi umfjöllun hefur vakið áhuga fólks á lögreglustörfum. Þau eru þó oft æði ólík þeirri mynd sem dregin er upp í sögum og kvikmyndum.
Rannsóknir sakamála eru vandasamar og flóknari en fólk gerir sér grein fyrir í fljótu bragði. Afdrifaríkir atburðir eru til rannsóknar og opinberrar umfjöllunar og því mikil- vægt að réttur bæði þolenda og gerenda sé metinn jafnt. Rannsókn er í rauninni aðeins leit að sannleikanum, hver svo sem hann kann að vera og tilraun til þess að nálgast hann eins faglega og kostur er. Eðli málsins sam- kvæmt eru ekki allir jafnákafir í að leiða sannleikann í ljós og því er hæfni þeirra sem að málunum koma afar mikilvæg.
Fordómaleysi, innsæi í mannlegar tilfin- ningar, hlutlaus vinnubrögð þar sem ekki er tekin persónuleg afstaða, er nauðsyn- leg til þess að rannsókn skili þeim árangri sem hún á að gera. Opinber umræða og neikvæð umfjöllun má ekki hafa áhrif á rannsakarann. Persónulegt álit hans á sökuðum manni, hvað svo sem hann kann að hafa til sakar unnið, má ekki heldur hafa áhrif á dómgreind hans eða vilja til þess að upplýsa sannleikann. Þetta getur verið erfiður línudans, sérstaklega í málum þar sem börn eða aðrir þeir sem minna mega sín koma við sögu. Þessi línudans er til umfjöllunar í bókinni Norræn Sakamál 2003.
Margvísleg sakamál af ólíkum toga eru rakin af þeim sem best til þekkja, það er að segja af fólkinu sem vann að þessum málum á rannsóknarstigi. Reynt er að leiða lesandann inn í þann heim sem blasir við þeim sem daglega starfa að rannsóknum sakamála og uppljóstrunum afbrota. Í bókinni er skýrt frá ólíkum sakamálum hvaðanæva af norðurlöndunum. Vonandi verður þú lesandi góður einhvers vísari um störf lög- reglunnar við lesturinn.

Fiche technique

  • Date de parution : 25/09/2020
  • Editeur : SAGA Egmont
  • Collection : Norræn Sakamál
  • ISBN : 978-87-26-51188-8
  • EAN : 9788726511888
  • Format : ePub
  • Nb. de pages : 214 pages
  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages : 214
    • Taille : 696 Ko
    • Protection num. : Digital Watermarking
Ýmsir Höfundar - Norræn Sakamál 2003.
Norræn Sakamál 2003
7,99 €
Haut de page