Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Nálarauga

  • SAGA Egmont

  • A paraître le : 30/08/2024
Fyrsta metsölubók Ken Follett er grípandi frásögn þar sem örlög seinni heimsstyrjaldar hvíla í höndum slyngs njósnara og hugrakkrar konu.Árið... > Lire la suite
5,99 €
E-book - ePub
Vérifier la compatibilité avec vos supports
Avec l'alerte parution, vous recevez un email dès que l'ouvrage est disponible
  • E-book À partir de 8,99 €
    • audio
      8,99 €
Fyrsta metsölubók Ken Follett er grípandi frásögn þar sem örlög seinni heimsstyrjaldar hvíla í höndum slyngs njósnara og hugrakkrar konu.Árið er 1944 og Henry Faber, þýskur njósnari í Bretlandi, kemst að áformum Breta um að ráðast inn í Normandí. Með því upphefst æsispennandi eltingarleikur, þar sem Faber ferðast í gegn um Bretland til að koma upplýsingunum áleiðis til þýskra yfirmanna sinna, með bresku leyniþjónustuna á hælunum.
Hann kemst þó ekki langt, því hann verður skipreka á skoskri eyju, þar sem hann hittir konu sem breytir öllu sem hann hefur áður haft trú á og með því gangi sögunnar. Bókin var gerð að kvikmynd árið 1981, með Donald Sutherland í aðalhlutverki. Hún fékk bandarísku Edgar verðlaunin árið 1979 og er enn í dag ein vinsælasta bók Folletts. Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum.
Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar.
Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.

Fiche technique

  • Date de parution : 30/08/2024
  • Editeur : SAGA Egmont
  • ISBN : 978-87-27-15129-8
  • EAN : 9788727151298
  • Format : ePub
  • Nb. de pages : 308 pages
  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages : 308
    • Taille : 666 Ko
    • Protection num. : Digital Watermarking

Nálarauga est également présent dans les rayons

Ken Follett et Hersteinn Pálsson - Nálarauga.
Nálarauga
5,99 €