Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Fimmti riddarinn

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 29/03/2024
Í fimmtu bókinni um Kvennamorðklúbbinn leitar Lindsay Boxer að hættulegasta morðingjanum til þessa, sannkölluðum engli dauðans. Nýr meðlimur... > Lire la suite
8,99 €
E-book - audio
Vérifier la compatibilité avec vos supports
  • E-book À partir de 5,99 €
    • ePub
      5,99 €
Í fimmtu bókinni um Kvennamorðklúbbinn leitar Lindsay Boxer að hættulegasta morðingjanum til þessa, sannkölluðum engli dauðans. Nýr meðlimur Kvennamorðklúbbsins, lögfræðingurinn Yuki Castellano, gengur til liðs við Lindsay Boxer til að rannsaka röð dularfullra dauðdaga sem eiga sér stað meðal sjúklinga á sjúkrahúsi. Á sama tíma standa stjórnendur spítalans í hörðu dómsmáli vegna læknamistaka og eru því síður en svo samvinnuþýð.
En Lindsay og Yuki eru sannfærðar um að morðinginn sé einn af starfsfólkinu og þær leggja allt í sölurnar til að komast að hinu sanna, enda er mikið í húfi. KvennamorðklúbburinnKvennamorðklúbburinn er röð spennusagna eftir James Patterson. Þær eiga það allar sameiginlegt að gerast í San Francisco og innihalda sömu fjórar aðalpersónurnar, konur sem láta ekkert stoppa sig til að réttlætið nái fram að ganga.
Árið 2007 voru gerðir sjónvarpsþættir sem byggðu á bókunum og báru sama nafn. James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.
Maxine Paetro er bandarískur rithöfundur. Hún er best þekkt fyrir bæði stakar bækur og seríur sem hún hefur skrifað með James Patterson. Bókin fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá notendum Goodreads.

Fiche technique

  • Caractéristiques du format MP3
    • Taille : 409 692 Ko
    • Protection num. : pas de protection
James Patterson et Maxine Paetro - Fimmti riddarinn.
Fimmti riddarinn
8,99 €
Haut de page