Einn frægasti strokufangi Vestur-Þýskalands, bankaræninginn Ludwig Lugmeier, var handtekinn fyrir hreina tilviljun af fimm óvopnuðum reykvískum... > Lire la suite
Einn frægasti strokufangi Vestur-Þýskalands, bankaræninginn Ludwig Lugmeier, var handtekinn fyrir hreina tilviljun af fimm óvopnuðum reykvískum lögreglu- mönnum að kvöldi föstudagsins 29. júlí árið 1977.
Í kjölfarið fylgdi mikil umfjöllun innlendra sem erlendra fjölmiðla af atburðinum, sem þótti með þeim merkari hér á landi. Eftir handtökuna endur- heimtust 277 þúsund mörk úr ránsfengnum.
Nokkrum dögum seinna tóku um 50 þýskir lögreglumenn með alvæpni á móti Lugmeier þegar íslenskur rannsóknarlögreglumaður skilaði honum af sér á flug- vellinum í Frankfurt. Þar með lauk ævintýralegum og átakanlegum 18 mánaða flótta hans undan réttvísinni vítt og breytt um heiminn.