"Leyndir kraftar hins illa gera fólki kleift að fara lengra en villtustu draumar ná." (Eugen Kogon.)
Það er ekki óþekkt að fólk ákveði að... > Lire la suite
"Leyndir kraftar hins illa gera fólki kleift að fara lengra en villtustu draumar ná." (Eugen Kogon.)
Það er ekki óþekkt að fólk ákveði að binda enda á líf sitt ásamt því að taka líf annarra. Hvað veldur er erfitt að segja. Fyrir flest okkar er erfitt, ef ekki ómögulegt að skilja þetta. Í mörgum tilfellum er um það að ræða að foreldrar taka líf barna sinna og síðan sitt eigið líf. Þess konar atburðir gerast oft í trúarhópum. Líka hefur komið fyrir að ungt fólk hafi gert það sama.
Það mál sem nú verður sagt frá snýst ekki um trú heldur um það hvernig maður reynir á afar skipulagðan hátt að koma eiginkonu sinni fyrir kattarnef. Hann sannfærir konuna um að þau muni bæði deyja til að fara í nýja vídd þar sem ekkert illt fyrirfinnst.