Menu
Mon panier

En cours de chargement...

Recherche avancée

Ævi mín og ástir

  • SAGA Egmont

  • Paru le : 16/06/2023
Sjálfsævisaga rithöfundarins og leikarans Frank Harris (1855 - 1931) kom út í íslenskri þýðingu Baldurs Hólmgeirssonar árið 1958. Harris rekur... > Lire la suite
8,99 €
E-book - ePub
Vérifier la compatibilité avec vos supports
Sjálfsævisaga rithöfundarins og leikarans Frank Harris (1855 - 1931) kom út í íslenskri þýðingu Baldurs Hólmgeirssonar árið 1958. Harris rekur ævi sína og örlög, allt frá barnæsku til kvennafars á fullorðinsárum. Ævisaga hans hefst á fleygu orðunum: "Minnið er móðir listagyðjanna og sönn fyrirmynd listamannsins." Eftir þeirri speki er sjálfsævisaga Harris rituð. Hann segir frá kynnum sínum af konum í miklum smáatriðum og teiknaði myndir til sem voru innblásnar af ævintýrum hans.
Frásögnin og teikningarnar sem þeim fylgdu vakti mikinn usla á sínum tíma og var bókin bönnuð í áratugi í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þrátt fyrir það varð Ævi mín og ástir metsölubók, hún þykir enn vera merkilegt erótískt verk og seldist dýrum dómum í Frakklandi þar sem hún var ekki bönnuð. "Ævi mín og ástir" kynnir lesanda einnig vel fyrir samtíma höfundarins, við sögu koma fjölmargar þekktar persónur sem Harris kynntist á sinni ævi.
Þar má nefna: Oscar Wild, Heinrich Heine, George Meredith og fleiri samtímamenn Harris. Frank Harris (1855 - 1931) fæddist 14. Febrúar 1855 í Galway á Írlandi. Hann kom víða við á viðburðaríkri ævi sinni. Hann flutti til Bandaríkjanna á fullorðinsárum til að læra lögfræði en síðar lagði hann leið sína aftur til Evrópu og settist að í London. Honum var margt til lista lagt. Frank Harris var þekktur rithöfundur, ritstjóri og blaðamaður.
Hann hóf feril sinn sem ritstjóri ýmissa dagblaða og tímarita, þar á meðal Fortnightly Review og Saturday Review. Frank Harris skrifaði nokkrar skáldsögur og einnig ritaði hann ævisögu Oscar Wilde, sem þótti tímamótaverk. Harris er þó þekktastur fyrir sjálfsævisöguleg verk sín, þar á meðal "Ævi mín og ástir". Ritstíll hans var umdeildur á sínum tíma og hann uppskar misjafnar móttökur á verkum sínum.
Harris var margslungin persóna og ef af orðspori hans má dæma var hann heillandi og erfiður í senn. Þrátt fyrir þetta var hann mjög virtur í bókmenntaheiminum þar til hann lést 26. ágúst 1931. Verk hans höfða til þeirra sem hafa áhuga á bókmenntasögunni og litríkum reynslusögum.

Fiche technique

  • Date de parution : 16/06/2023
  • Editeur : SAGA Egmont
  • ISBN : 978-87-28-38697-2
  • EAN : 9788728386972
  • Format : ePub
  • Nb. de pages : 214 pages
  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages : 214
    • Taille : 481 Ko
    • Protection num. : Digital Watermarking
Frank Harris et Baldur Hólmgeirsson - Ævi mín og ástir.
Ævi mín og ástir
8,99 €
Haut de page